Fotbolti.net
05.11.16 - 22:57
Jóhann Ingi Hafþórsson

Hasselbaink rekinn frá QPR (Staðfest)

Jimmy Floyd Hasselbaink.

Jimmy Floyd Hasselbaink.

Canon

Mynd: Getty Images

Jimmy Floyd Hasselbaink var rekinn sem stjóri QPR í kvöld, eftir minna en eitt ár í starfi.
Hollendingurinn kom frá Burton í desember en QPR hefur valdið vonbrigðum á tímabilinu og eru aðeins í 17. sæti deildarinnar, sex stigum frá fallsæti.

Síðasti leikur Hasselbaink var 1-1 jafntefli við Nottingham Forest í dag.

Idrissa Sylla jafnaði leikinn fyrir QPR í blálokin en liðið var búið að tapa tveim leikjum í röð, fyrir leikinn í dag. Samkvæmt Sky mun QPR ráða nýjan þjálfara áður en landsleikjapásunni lýkur.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.