Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   mán 05. nóvember 2018 15:27
Elvar Geir Magnússon
Brasilískur fótboltamaður nappaður í rúminu og myrtur á hrottalegan hátt
Daniel Correa, rétt áður en hann vart myrtur.
Daniel Correa, rétt áður en hann vart myrtur.
Mynd: Mirror
Á meðfylgjandi mynd má sjá Daniel Correa, leikmann Sao Paulo í Brasilíu, rétt áður en hann var myrtur á hrottalegan hátt.

Það var eiginmaður konunnar á myndinni sem myrti Correa en hann kom að þeim í rúminu.

Lík Correa fannst í runna en búið var að skera hann á háls og skera undan honum kynfærin.

Viðskiptamaðurinn Edson Brittes Junior hefur játað að hafa drepið hinn 24 ára Correa. Hann segist hafa brjálast þegar hann kom að Correa og segir að hann hafi verið að nauðga eiginkonu sinni.

Correa hafði verið í afmælisveislu 18 ára dóttur hjónanna.

Hann sendi skilaboð og myndir til vina sinna umrætt kvöld þar sem hann sagðist „ætla að borða mömmu afmælisbarnsins" og tilkynnti að pabbinn væri í húsinu.
Athugasemdir
banner
banner