Fotbolti.net
05.11.18 - 17:33
Arnar Helgi Magnússon

Ian Jeffs ráðinn aðstoðarþjálfari ÍBV (Staðfest)

Ian Jeffs ráðinn aðstoðarþjálfari ÍBV (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Ian Jeffs hefur verið ráðinn aðstoðarþjálfari ÍBV en þetta kemur fram á heimasíðu ÍBV núna rétt í þessu.
Jeffs skrifaði undir tveggja ára samning við knattspyrnudeild ÍBV en hann mun sinna þessu hlutverki samhliða þjálfun kvennalandsliðsins.

„Það er mikill styrkur að fá Jeffs til liðs við Pedro um þjálfun liðsins og erum við spennt fyrir þessu þjálfarateymi, en þeir eru báðir mjög metnaðarfullir þjálfarar," segir á heimasíðu ÍBV.

Ian Jeffs þekkir hvern krók kima í Vestmanneyjum en hann hefur starfað við þjálfun hjá knattspyrnudeildinni í þónokkur ár ásamt því að spila með félaginu.

Pedro Hipolito var ráðinn þjálfari ÍBV en áður en hann tók til starfa var Jeffs sterklega orðaður sem næsti aðalþjálfari

„Ég var búinn að heyra í þeim og mitt nafn var í hattinum. Þeir vildu fara í aðra átt og þá fór ég að hugsa út í hvað ég vildi gera. Þá kom upp sá möguleiki á að vera aðstoðarþjálfari þar og vera aðstoðarmaður Jóns Þórs. Mér finnst það mjög spennandi og ég er mjög ánægður með hvað kom út úr þessu. Ég hlakka til að vinna í báðum störfum," sagði Jeffs í hlaðvarpsþættinum Miðjunni sem kom út í október mánuði.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.