Fotbolti.net
05.11.18 - 18:51
Arnar Helgi Magnússon

Stefán Gíslason tekur við Leikni R. (Staðfest)

Stefán Gíslason tekur við Leikni R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Stefán Gíslason hefur verið ráðinn þjálfari Leiknis R. en hann gerði tveggja ára samning við félagið. Þetta kemur fram á heimasíðu Leiknis nú rétt í þessu.
Stefán þjálfaði síðast Hauka í Inkasso deildinni en hætti með þá eftir tímabilið í fyrra, árið 2017. Ástæðan var sú að hann vildi einbeita sér að krefjandi uppbyggingu á eigin fyrirtæki.

Hann þjálfaði einnig yngri flokka Breiðabliks áður en hann tók við Haukum.

Stefán átti farsælan feril sem leikmaður en hann var lengi vel útí atvinnumennsku og spilaði með liðum á borð við Bröndby, Lyn og Viking Stavanger. Hann á einnig yfir 30 A-landsleiki fyrir Ísland.

„Við bjóðum Stefán innilega velkominn í Breiðaholtið og óskum honum góðs gengis á komandi tímabili," segir á heimasíðu Leiknis.

Sigurður Heiðar Höskuldsson verður aðstoðarmaður Stefáns en hann aðstoðaði einnig Vigfús Arnar í sumar.

Með þessari ráðningu eru öll þjálfaramál hjá liðunum í efstu tveimur deildunum klár.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.