05.12.12 - 12:18
Elvar Geir Magnússon
Guðbjörg bætist í Íslendingahóp Avaldsnes (Staðfest)


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Markvörðurinn Guðbjörg Gunnarsdóttir hefur samið við Avaldsnes í Noregi og mun leika með liðinu á nýju ári.
Guðbjörg hefur undanfarin ár verið einn besti markvörður sænsku úrvalsdeildarinnar þar sem hún hefur leikið með Djurgarden.
Guðbjörg hefur undanfarin ár verið einn besti markvörður sænsku úrvalsdeildarinnar þar sem hún hefur leikið með Djurgarden.
Mist Edvardsdóttir gekk um helgina til liðs við Avaldsnes sem er gríðarlegt Íslendingalið. Í herbúðum þess eru Björk Björnsdóttir, Þórunn Helga Jónsdóttir og Hólmfríður Magnúsdóttir.
Þá lék Kristín Ýr Bjarnadóttir með liðinu á liðnu tímabili en er á förum.
Avaldsnes er komið upp í norsku úrvalsdeildinni og ætlar sér stóra hluti þar.
Þá lék Kristín Ýr Bjarnadóttir með liðinu á liðnu tímabili en er á förum.
Avaldsnes er komið upp í norsku úrvalsdeildinni og ætlar sér stóra hluti þar.
