05.12.16 - 08:00
Kristófer Kristjánsson
Birnir Snær og Hans Viktor framlengja við Fjölni (Staðfest)

Birnir Snær Ingason (t.v.) og Hans Viktor Guðmundsson (t.h.)

Mynd: Fjölnir

Birnir Snær Ingason (t.v.) og Hans Viktor Guðmundsson (t.h.)

Mynd: Fjölnir
Birnir Snær Ingason og Hans Viktor Guðmundsson hafa báðir framlengt samninga sína við Knattspyrnudeild Fjölnis en samningarnir voru handsalaðir í Egilshöllinni um helgina.
Kantmaðurinn Birnir Snær Ingason, 20 ára, á 20 leiki og þrjú mörk í Pepsi deildinni fyrir Fjölni en hann hefur spilað í Grafarvoginum síðastliðin tvö sumur eða allan sinn meistaraflokksferil.
Hans Viktor Guðmundsson. 20 ára, vann sér inn sæti í hjarta varnarinnar hjá Fjölni í sumar og spilaði 19 leiki og skoraði 2 mörk í Pepsi deildinni en sumarið 2015 spilað hann fjóra leiki.
Hans Viktor var sömuleiðis kallaður inn í U21 Landsliðshópinn fyrr í haust.