Fotbolti.net
05.12.16 - 14:13
Magnús Már Einarsson

Bjarki Aðalsteinsson í Leikni R. (Staðfest)

Bjarki Aðalsteinsson í Leikni R. (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson

Leiknir R. hefur fengið miðvörðinn Bjarka Aðalsteinsson í sínar raðir frá Þór Akureyri.

Bjarki spilaði tíu leiki með Þórsurum í Inkasso-deildinni síðastliðið sumar.
Leiknir hefur verið í leit að miðverði eftir að Óttar Bjarni Guðmundsson fór frá félaginu í Stjörnuna í haust.

Hinn 25 ára gamli Bjarki er 190 cm á hæð en hann er uppalinn hjá Breiðabliki.

Hann hefur einnig leikið með Reyni Sandgerði og Selfossi hérlendis. Bjarki lék einnig í bandaríska háskólaboltanum með James Madison University, við góðan orðstír þar sem hann lauk námi.

„Bjarki er öflugur í loftinu og flinkur á boltan, sérstaklega ef tekið er mið af hæð hans,\" segir á heimasíðu Leiknis.

„Hann var fyrirliði skólaliðs síns í BNA og kemur án vafa til með að nýtast vel í okkar hópi. Bjarki er boðin hjartanlega velkomin til liðs við Leikni og við hlökkum til að sjá hann í bláa og rauða búningum á komandi leiktíð.\"
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.