05.12.16 - 18:18
Magnús Már Einarsson
Chapecoense vinnur Suður-Ameríku bikarinn (Staðfest)

Chapecoense fagna marki fyrr á árinu.

Mynd: Getty Images

Chapecoense fagna marki fyrr á árinu.

Mynd: Getty Images
Knattspyrnusamband Suður-Ameríku hefur staðfest að brasilíska félagið Chapecoense sé sigurvegari í Suður-Ameríkubikarnum árið 2016.
Chapecoense átti að mæta kolumbíska liðinu Atletico Nacional í tveimur úrslitaleikjum, heima og að heiman.
Leikmenn og starfsfólk Chapecoense lentu í flugslysi á leið í fyrri leikinn í Kolumbíu í síðustu viku. 71 lét lífið í slysinu en þar á meðal voru 19 leikmenn Chapecoense.
Atletico Nacional bauðst strax til að láta Chapecoense vinna titilinn.

Knattspyrnusamand Suður-Ameríku staðfesti síðdegis í dag að Chapecoense vinni keppnina en Atletico Nacional fékk sérstök heiðursverðlaun á sama tíma.
CONMEBOL otorga el título de Campeón de la #CopaSudamericana 2016 a Chapecoense: https://t.co/UTgU9ksznz pic.twitter.com/reUCoRUXQu
— CONMEBOL.com (@CONMEBOL) December 5, 2016