Fotbolti.net
05.12.16 - 17:30
Magnús Már Einarsson

Sven-Göran tekur við af Seedorf í Kína (Staðfest)

Sven-Goran Eriksson.

Sven-Goran Eriksson.

Canon

Mynd: Getty Images

Sven-Göran Eriksson, fyrrum landsliðsþjálfari Englands, hefur verið ráðinn þjálfari hjá Shenzen FC í næstefstu deild í Kína.

Hinn 68 ára gamli Sven-Goran tekur við af fyrrum hollenska landsliðsmanninum Clarence Seedorf.

Seedorf tók við Shenzen í sumar en náði ekki að koma liðinu upp í úrvalsdeildina.
Erikson hefur sjálfur þjálfað Shanghai SIPG í Kína undanfarin tvö ár en hann hætti störfum þar í síðasta mánuði.

Andre Villas-Boas, fyrrum stjóri Tottenham, tók við af Eriksson hjá Shanghai SIPG.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.