Fotbolti.net
05.12.18 - 06:00
Magnús Már Einarsson

Ivan Jugovic og Heimir Daði þjálfa GG (Staðfest)

Heimir Daði Hilmarsson, Haukur Guðberg Einarsson formaður og Ivan Jugovic.

Heimir Daði Hilmarsson, Haukur Guðberg Einarsson formaður og Ivan Jugovic.

Canon

Mynd: GG

Ivan Jugovic og Heimir Daði Hilmarsson ætla í sameiningu að stýra GG í 4.deildinni næsta sumar.
GG hefur verið með lið í 4.deildinni síðustu þrjú tímabil og hefur verið að þróa samstarf með Grindavík, meðal annars með sameiginlegu liði Grindavíkur og GG í 2.flokki.

Heimir Daði stýrði liðinu síðasta sumar og endaði liðið í 4.sæti C riðils með 24 stig undir hans stjórn.

„Stjórn GG er afar ánægð með þessa ráðningu og er stefnt að því að halda áfram að bæta árangur liðsins milli ára," segir í tilkynningu frá GG.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.