Fotbolti.net
05.12.19 - 05:55
Ívan Guðjón Baldursson
Subway

England í dag - Arsenal þarf sigur

England í dag - Arsenal þarf sigur
Canon

Mynd: Getty Images

Tveir síðustu leikir 15. umferðar ensku úrvalsdeildarinnar fara fram í kvöld og verða þeir sýndir beint á sportstöðvum <i>Símans</i>.
Nýliðar Sheffield United taka á móti Newcastle á meðan Arsenal fær Brighton í heimsókn.

Sheffield og Arsenal eru jöfn á stigum um miðja deild og geta komið sér upp í 6-7. sæti með sigrum. Arsenal hefur ekki unnið deildarleik í tvo mánuði, eða síðan 6. október.

Þetta verður annar leikur Freddie Ljungberg við stjórnvölinn hjá Arsenal eftir að Unai Emery var látinn fara í lok nóvember.

Newcastle og Brighton eru rétt fyrir ofan fallsvæðið. Brighton er búið að tapa þremur leikjum í röð.

Leikir kvöldsins:
19:30 Sheffield Utd - Newcastle (Síminn Sport)
20:15 Arsenal - Brighton (Síminn Sport 2)

Stöðutafla

#LiðLmunStig
1Man City5+815
2Arsenal5+412
3Brighton5+1110
4Brentford5+69
5Leeds5+49
6Liverpool5+39
7Everton5+39
8Hull City5+28
9Newcastle508
10Chelsea5-27
11Ipswich Town5-46
12Man Utd505
13Nott. Forest5-15
14Sunderland5-44
15Crystal Palace5-54
16Aston Villa5-54
17Bournemouth5-23
18Coventry5-93
19Fulham5-32
20Tottenham5-62
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.