Arsenal endurnýjar áhuga á Luiz - Man Utd reynir við Todibo - Tottenham vill Sudakov
   fim 05. desember 2019 18:00
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Shameeka Fishley áfam hjá Stjörnunni
Shameeka í leik gegn Þór/KA í haust.
Shameeka í leik gegn Þór/KA í haust.
Mynd: Fótbolti.net - Sævar Geir Sigurjónsson
Shameeka Fishely hefur skrifað undir nýjan samning við Stjörnuna og mun leika með félaginu á komandi tímabili.

Shameeka er öflugur leikmaður sem lék með Stjörnunni í sumar og hafði áður leikið með ÍBV í efstu deild, með Sindra og liði í efstu deild á Ítalíu.

Shameeka lék níu leiki með Stjörnunni í Pepsi Max-deildinni á liðnu sumri og skoraði tvö mörk. Hún hefur alls leikið 44 leiki í deild og bikar á Íslandi og skorað í þeim 14 mörk.

Shameeka er fædd árið 1993 og verður því 27 ára á næsta ári. Stjarnan endaði í 5. sæti deildarinnar á liðnu tímabili.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner