Fotbolti.net
05.12.24 - 15:05
Elvar Geir Magnússon

Riðlar Lengjubikarsins: Breiðablik og Völsungur saman í riðli

Breiðablik er ríkjandi Lengjubikarmeistari.

Breiðablik er ríkjandi Lengjubikarmeistari.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Á vef KSÍ hefur riðlaskipting og drög að niðurröðun leikja í Lengjubikarnum 2025 verið birt. Leikin er einföld umferð í riðlunum. Sigurvegarar riðlanna komast í úrslitakeppni mótsins og leika til undanúrslita.

Keppni í A-deild karla hefst í byrjun febrúar en hér að neðan má sjá hvernig riðlaskiptingin er í efstu tveimur deildum.

Breiðablik er ríkjandi Lengjubikarmeistari en liðið vann ÍA 4-1 í úrslitaleik á Kópavogsvelli í mars. Í riðli með Blikum á næsta ári verður meðal annars Völsungur sem endaði í öðru sæti 2. deildar á liðnu sumri og komst upp í Lengjudeildina.
Sjáðu öll mörkin: Breiðablik Lengjubikarmeistari 2024
TENGT EFNI

Sjáðu öll mörkin: Breiðablik Lengjubikarmeistari 2024

A-deild karla:

Riðill 1: Grindavík, Fjölnir, ÍA, Valur, Vestri, Þróttur.

Riðill 2: Breiðablik, Fram, Fylkir, KA, Njarðvík, Völsungur.

Riðill 3: Afturelding, FH, HK, ÍR, Víkingur, Þór.

Riðill 4: ÍBV, Keflavík, KR, Leiknir, Selfoss, Stjarnan.

B-deild karla:

Riðill 1: Hvíti riddarinn, KFG, Kormákur/Hvöt, KV, Reynir S., Þróttur V.

Riðill 2: Augnablik, Árborg, Víðir, Víkingur Ó., Ýmir, Ægir.

Riðill 3: Árbær, Grótta, Haukar, ÍH, Kári, Sindri.

Riðill 4: Dalvík/Reynir, Höttur/Huginn, KF, KFA, Magni, Tindastóll.



Hér má sjá riðlaskiptinguna í heild (með C-deild)

Drög að leikjaniðurröðun
Elfar Árni mætir sínum fyrrum félögum; KA og Breiðabliki.

Elfar Árni mætir sínum fyrrum félögum; KA og Breiðabliki.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Sæbjörn Steinke

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.