06.01.13 - 08:00
Magnús Már Einarsson
Bessi og Gunnar Már í KA (Staðfest)

Allir leikmennirnir níu ásamt Bjarna Jóhanssyni, þjálfara og Srdjan Tufegdzic, aðstoðarþjálfara KA.

Mynd: KA

Gunnar Már, Bessi og Fannar Freyr.

Penninn var á lofti í KA-heimilinu í gær en þá skrifuðu níu leikmenn undir samning við félagið.
Þar á meðal voru Bessi Víðisson og Gunnar Már Magnússon sem koma til KA eftir að hafa leikið með Dalvík/Reyni undanfarin ár. Þeir skrifuðu báðir undir tveggja ára samning við KA.
Bessi var markahæsti leikmaðurinn í annarri deildinni í sumar en hann var einnig valinn í lið ársins.
Gunnar Már, sem er 25 ára gamall miðjumaður, hefur leikið með Dalvík/Reynir í fjölda ára en hann hefur skorað 49 mörk í 135 meistaraflokksleikjum.
Þá gerði Fannar Freyr Gíslason einnig tveggja ára samning við KA. Fannar Freyr kemur til KA frá ÍA en hann hefur einnig leikið með Tindastóli og HK á láni á ferli sínum. Síðastliðið sumar var Fannar á láni hjá Tindastóli fyrri hluta sumars áður en hann kom til KA á láni í júlí.
Aksentije Milisic, Ívar Guðlaugur Ívarsson og Jón Heiðar Magnússon skrifuðu einnig undir tveggja ára samning við KA en þeir eru uppaldir hjá félaginu.
Baldvin Ingimar Baldvinsson, Bjarni Mark Antonsson og Ólafur Aron Pétursson skrifuðu allir undir þriggja ára samning. Þeir eru allir ennþá í öðrum flokki en bæði Baldvin og Bjarni Mark eru frá Siglfirðingar sem komu til KA frá KF.