Fotbolti.net
06.01.17 - 16:45
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Hull kaupir Markus Henriksen (Staðfest)

Henriksen verður áfram hjá Hull.

Henriksen verður áfram hjá Hull.

Canon

Mynd: Getty Images

Hull City, sem spilar í ensku úrvalsdeildinni, hefur ákeðið að festa kaup á miðjumanninum Markus Henriksen, en hann kemur frá AZ Alkmaar í Hollandi.

Henriksen hefur verið í láni hjá Hull á þessu tímabili, en nú hefur félagið ákveðið að kaupa hann til sín. Hann skrifar undir tveggja- og hálfs árs samning við Hull.
Þessi 24 ára gamli Norðmaður hefur leikið 14 leiki fyrir Hull á þessu tímabili, þar af 11 í ensku úrvalsdeildinni, þar sem liðið er á botninum.

„Tilfinningin er mjög góð,\" sagði Henriksen eftir að hafa skrifað undir. „Þetta hefur verið upp og niður hjá mér hingað til, en vonandi get ég sýnt öllum mitt besta.\"

Kaupin á Henriksen voru kláruð degi eftir að þjálfarinn Marco Silva var ráðinn út tímabilið. Silva tekur við liðinu af Mike Phelan sem var rekinn fyrr í vikunni.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.