Fotbolti.net
06.01.17 - 12:22
Magnús Már Einarsson

Máni Austmann í Stjörnuna (Staðfest)

Máni Austmann Hilmarsson.

Máni Austmann Hilmarsson.

Canon

Mynd: Stjarnan

Stjarnan hefur náð samkomulagi við FC Kaupmannahöfn um að fá Mána Austmann Hilmarsson í sínar raðir.

Hinn 18 ára gamli Máni er framherji en hann hefur verið í unglingaliði FCK í Danmörku.
Máni hefur verið í U19 ára landsliði Íslands en hann á samtals 21 leik að baki með yngri landsliðinum.

„Það verða því fleiri bræður en bara þeir Jóhann og Daníel Laxdal í Stjörnunni næstu árin en nýlega kynnti Stjarnan að Dagur, bróðir Mána væri einnig kominn til félagsins. Þeir bræður eru Stjörnumönnum að góðu kunnir en þeir léku báðir með yngri flokkum félagsins áður en þeir fluttu út með fjölskyldu sinni,\" segir á Facebook síðu Stjörnunnar.

Sjá einnig:
Dagur Austmann í Stjörnuna (Staðfest)

Máni Austmann er mættur frá FCK og Dúllan er búin að kvitta á allt saman! @ManiAustmann vertu velkominn! #InnMedBoltann pic.twitter.com/7VLsPh8mED

— Stjarnan FC (@FCStjarnan) January 6, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.