Fotbolti.net
06.01.17 - 10:00
Magnús Már Einarsson

Obi Mikel til Kína (Staðfest)

Farinn til Kína.

Farinn til Kína.

Canon

Mynd: Getty Images

John Obi Mikel, miðjumaður Chelsea, hefur gengið til liðs við kínverska félagið Tianjin TEDA.

Obi Mikel hefur verið hjá Chelsea í tíu ár og leikið yfir 300 leiki með liðinu.
Þessi 29 ára gamli leikmaður hefur hins vegar ekkert spilað með Chelsea á þessu tímabili.

Nígeríumaðurinn vann samtals 11 titla á tíma sínum hjá Chelsea en hann hefur nú ákveðið að fara til Kína.

„Eins og þið vitið þá hef ég ekki spilað jafn mikið og ég hefði viljað á þessu tímabili. Ég er 29 ára og á ennþá nokkur ár eftir. Með það í huga þá tel ég vera kominn tími á nýja áskorun,\" sagði Obi Mikel.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.