Fotbolti.net
06.01.20 - 11:30
Magnús Már Einarsson

Sara Dögg í Fylki (Staðfest)

Sara Dögg Ásþórsdóttir.

Sara Dögg Ásþórsdóttir.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Sara Dögg Ásþórsdóttir hefur samið við Fylki en hún kemur til félagsins frá Aftureldingu.

Hin 15 ára gamla Sara er miðjumaður en hún hefur þrátt fyrir ungan aldur spilað tuttugu leiki í deild og bikar.

Síðastliðið sumar spilaði Sara fjórtán leiki með Aftureldingu í Inkasso-deildinni.
Þá hefur Sara spilað 2 leiki með U-16 ára landsliði Íslands.

Í haust gekk Eva Rut, systir Söru, einnig til liðs við Fylki en hún kom til félagsins eftir dvöl hjá HK/Víkingi.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.