06.02.17 - 15:30
Magnús Már Einarsson
Nathasha Anasi í Keflavík (Staðfest)

Natasha í leik með ÍBV í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Natasha í leik með ÍBV í fyrrasumar.

Mynd: Fótbolti.net - J.L.

Varnarmaðurinn öflugi Natasha Anasi hefur skrifað undir þriggja ára samning við Keflavík í 1. deild kvenna.
„Það er mikill fengur fyrir deildina að fá Natöshu til liðs við okkur í baráttunni að komast í deild þeirra bestu, Pepsi deildina,\" segir á heimasíðu Keflavíkur.
Hin bandaríska Natasha hefur verið í stóru hlutverki í vörn ÍBV undanfarin þrjú tímabil en síðastliðið sumar var hún valin í úrvalslið tímabilsins hjá Fótbolta.net.
Natasha er ólétt en hún á von á barni í júní og verður því lítið sem ekkert með á komandi tímabili.
Samningur hennar er hins vegar til þriggja ára og Natasha verður því með Keflavík næstu árin.