Fotbolti.net
06.02.17 - 10:02
Magnús Már Einarsson

Sölvi Geir til Tælands (Staðfest)

Sölvi Geir Ottesen.

Sölvi Geir Ottesen.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sölvi Geir Ottesen hefur gengið til liðs við Buriam United í Tælandi en félagið greinir frá þessu á Facebook síðu sinni í dag.
Sölvi Geir hefur undanfarin tvö ár spilað í Kína. Árið 2015 varð Sölvi bikarmeistari í Kína með Jiangsu Suning en í fyrra spilaði hann með Wuhan Zall í B-deildinni.

Hinn 32 ára gamli Sölvi ætlar nú að spila í Tælandi á komandi tímabili. Sölvi hefur áður á ferlinum leikið með Víkingi R, SønderjyskE, Djurgarden, FC Kaupmannahöfn og Ural.

Buriam vann deild og bikar í Tælandi árið 2015 en í fyrra endaði liðið í 4. sæti í úrvalsdeildinni.

Fjórir Brasilíumenn eru á mála hjá Buram og einn Suður-Kóreumaður en aðrir leikmenn liðsins koma frá Tælandi. Ranko Popović frá Serbíu er þjálfari liðsins en hann stýrði síðast Real Zaragoza á Spáni.

Tímabilið í Tælandi hefst um helgina en Buriam hefur leik gegn Chonburi á sunnnudaginn. 18 lið leika í úrvalsdeildinni í Tælandi en keppni stendur yfir fram í október.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.