Fotbolti.net
06.02.18 - 18:00
Magnús Már Einarsson

Einar Logi í ÍA (Staðfest)

Einar Logi í leik með ÍA fyrir nokkrum árum.

Einar Logi í leik með ÍA fyrir nokkrum árum.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Varnarmaðurinn Einar Logi Einarsson hefur gengið til liðs við ÍA á nýjan leik. Einar Logi er uppalinn hjá ÍA en hann spilaði síðast með liðinu í næstfstu deild árið 2014.

Hinn 27 ára gamli Einar hefur undanfarin tvö ár spilað með Kára í 3. deildinni. Hann var fyrirliði Kára og skoraði fimm mörk í fimmtán leikjum þegar liðið vann 3. deildina í fyrra.
Einar Logi hefur spilað með ÍA í Fótbolta.net mótinu í byrjun árs og hann hefur nú fengið félagaskipti.

Einar Logi hóf feril sinn með meistaraflokki ÍA árið 2010 og lék fimm tímabil með liðinu áður en hann fór í HK. Þaðan fór hann svo í Kára fyrir sumarið 2016.

Komnir:
Alexander Már Þorláksson frá Kára
Birgir Steinn Ellingsen frá Kára
Bjarki Steinn Bjarkason frá Aftureldingu
Einar Logi Einarsson frá Kára
Hörður Ingi Gunnarsson frá FH
Marinó Hilmar Ásgeirsson frá Kára
Ragnar Leósson frá Leikni R.
Skarphéðinn Magnússon frá Kára
Viktor Helgi Benediktsson frá FH

Farnir:
Guðmundur Böðvar Guðjónsson í Breiðablik
Ingvar Þór Kale
Patryk Stefanski
Rashid Yussuff
Viktor Örn Margeirsson í Breiðablik (Var á láni)
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.