Fotbolti.net
06.02.18 - 15:30
Magnús Már Einarsson

Koeman tekinn við hollenska landsliðinu (Staðfest)

Ronald Koeman.

Ronald Koeman.

Canon

Mynd: Getty Images

Ronald Koeman hefur verið ráðinn nýr landsliðsþjálfari Hollendinga en þetta var staðfest í dag. Koeman skrifaði undir samning sem gildir til ársins 2022.

Hinn 54 ára gamli Koeman var rekinn frá Everton í nóvember síðastliðnum eftir erfiða byrjun á tímabilinu.
Hollenska landsliðið hefur verið án þjálfara síðan Dick Advocaat sagði af sér í nóvember, eftir að hafa mistekist að koma liðinu á HM.

Koeman lék 78 landsleiki fyrir Holland sem leikmaður og skoraði 14 mörk á 12 ára skeiði, frá 1982 til 1994.

Koeman var aðstoðarþjálfari hollenska landsliðsins á HM 1998, þegar Holland tapaði í vítaspyrnukeppni fyrir Brasiíu í undanúrslitum.

Hann hefur mikla reynslu úr hollenska boltanum eftir að hafa verið við stjórnvölinn hjá Vitesse, AJax, PSV, AZ Alkmaar og Feyenoord. Þar að auki stýrði hann Benfica, Valencia og Southampton áður en hann fór til Everton.

I am proud to finally announce that I am the new manager of the Dutch national team. Happy to be here and serve the country in our road to UEFA Euro 2020! 🔸🇳🇱🔸 #OnsOranje #KNVB #NederlandsElftal https://t.co/OQwmIUp0xj

— Ronald Koeman (@RonaldKoeman) February 6, 2018


Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.