06.02.18 - 18:30
Magnús Már Einarsson
Van Der Wiel til Toronto (Staðfest)
Verður númer 9

Van Der Wiel á 48 landsleiki að baki með Hollandi.

Mynd: Getty Images

Hollenski bakvörðurinn Gregory van der Wiel hefur gengið til liðs við Toronto í MLS deildinni.
Hinn þrítugi Van der Wiel ólst upp hjá Ajax en hann lék síðan með PSG frá 2012 til 2016.
Eftir stutt stopp hjá Fenerbahce í Tyrklandi og Cagliari á Ítalíu þá er hann nú mættur til Ameríku.
„Ég hef alltaf spilað með liðum þar sem þú verður að vinna leiki. Þess vegna gekk ég til liðs við þetta félag,\" sagði Van der Wiel eftir undirskrift.
Athygli vekur að Van der Wiel ætlar að spila í treyju númer 9 hjá Toronto en það er óvenjulegt af bakverði að vera.