Fotbolti.net
06.03.19 - 18:30
Arnar Daði Arnarsson

Arnar og Björn þjálfarar Kríu í sumar (Staðfest)

Kríumenn leika í 4. deildinni.

Kríumenn leika í 4. deildinni.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

Kría sem leikur í 4. deildinni í sumar hafa ráðið nýtt þjálfarateymi félagsins. Í gær sömdu þeir við þá Arnar Axelsson og Björn Breiðfjörð Valdimarsson um að þjálfa liðið á komandi tímabili.
„Bæði Arnar og Bjössi eru núverandi þjálfarar hjá Gróttu og mun því ráðningin vafalaust styrkja enn frekar þau miklu vinabönd sem ríkja milli félaganna," segir í tilkynningu frá félaginu.

Kría leikur í D-riðli 4. deildarinnar í sumar og verður fyrsti leikur þeirra gegn nýstofnuðu liði KÁ, varaliði Hauka. Áður en Íslandsmótið hefst leikur liðið í C-deild Lengjubikarsins.

Kría lenti í 4. sæti D-riðils 4.deildarinnar í fyrra. Kristján Daði Finnbjörnsson var þjálfari liðsins í fyrra.

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.