06.03.19 - 12:30
Arnar Daði Arnarsson
Meistaraspáin - Á United möguleika í kvöld?

Meistaraspáin.

Mynd: Fótbolti.net

Benfica mætir Roma.

Mynd: Getty Images

Solskjær mætir með United til Frakklands.

Mynd: Getty Images

Meistaraspáin.

Mynd: Fótbolti.net
Seinni umferðin í 16-liða úrslitum Meistaradeildarinnar heldur áfram í kvöld með tveimur leikjum. Hefjast leikirnir báðir klukkan 20:00.
Ágúst Gylfason þjálfari Breiðabliks og Óli Stefán Flóventsson þjálfari KA eru sérfræðingar Fótbolta.net í Meistaradeildinni á þessu tímabili.
Fótbolti.net kemur einnig með sína spá en keppni er í gangi þar sem 3 stig eru gefin fyrir hárrétt úrslit og 1 stig fyrir rétt tákn.
Tveir leikir fóru fram í gærkvöldi þar sem enginn spáði réttum úrslitum. Það væri ansi ljótt ef það myndi endurtaka sig aftur í kvöld.

Ágúst Þór Gylfason
Porto 2 – 1 Roma (5-3 eftir vítaspyrnukeppni)
Þessi leikur verður fjörugur frá upphafi til enda. Þjálfari Roma Eusebio Di Francesco fær að halda starfinu eftir vasklega framgöngu leikmanna inni á vellinum, þrátt fyrir að falla úr keppni.
Markaskorar kvöldsins verða Moussa Marega og Edin Dzeko en Kostas Manolas hjá Roma lætur verja frá sér víti sem mun skilja liðin að.
PSG 1 - 2 Manchester United
Eins og Ole Gunnar nefndi eftir fyrri leikinn „einvígið er ekki búið“. Ég íhugaði þann möguleika og setti mig í hans spor. Hvernig myndi maður leggja leikinn upp. Þéttur varnarleikur er lykillinn að sigri í þessum leik, draga leikmenn PSG út úr stöðum og sækja hratt með gagn sóknum.
Ungstirnin Rashford og Mbappe skora mörkin.
Óli Stefán Flóventsson
Porto - Roma 2-0
Þarna er athyglisverður leikur í meira lagi. Roma virtist ætla að keyra yfir Porto í fyrri leik liðanna á Ítalíu en Porto kom inn marki í stöðunni 2-0 sem breytir einvíginu umtalsvert.
Það er mikil pressa á Roma eftir skelfilegt tap á móti Lazio í síðustu umferð í Seriu A en stuðningsmenn Roma höfðu nákvæmlega engan húmor fyrir því. Ég held að Porto vinni leikinn 2-0 og komist áfram.
PSG 2 - 1 Manchester United
Það má alveg færa fyrir því sterk rök að Ole Gunnar mæti með sína menn nokkuð pressulausa eftir 0-2 tap í fyrri leik liðanna. Það eru mikil meiðsli og Pogba í leikbanni þannig að menn eru ekki endilega að reikna með miklu frá Rauðu Djöflunum.
United skorar hinsvegar snemma með marki frá Lukaku og setja leikinn í uppnám. PSG er hinsvegar með Mbappé sem skorar tvö í andlitið á United þegar þeir eru að pressa á annað mark. Hef trú á því að Thomas Tuchel fari með PSG í úrslitaleikinn þetta árið.
Fótbolti.net - Brynjar Ingi Erluson
Porto 2 - 0 Roma
Portúgalska liðið hefur átt öflugt tímabil til þessa og það vill væntanlega svara fyrir tapið gegn Benfica um helgina. Benfinga náðu í mikilvægt útivallarmark gegn Roma í fyrri leiknum og voru óaðfinnanlegir í riðlakeppninni. Roma búið að vera í basli og hægt að setja (Staðfest) á það að Eusebio Di Francesco taki pokann sinn eftir leikinn ef liðið tapar.
PSG 1 - 1 Man Utd
Eini tapleikur Solskjær með United kom gegn PSG á Old Trafford og þau úrslit ansi þung. United verður að fara all-in en franska liðið tekur litla áhættu. PSG sættir sig við jafnteflið og fer því örugglega áfram.
Staðan í heildarkeppninni:
Óli Stefán - 5 stig
Fótbolti.net - 5 stig
Gústi Gylfa - 4 stig