06.03.19 - 15:43
Arnar Daði Arnarsson
Jaap Stam tekur við Feyenoord í sumar (Staðfest)

Jaap Stam tekur við Feyenoord í sumar.

Mynd: Getty Images

Jaap Stam tekur við Feyenoord í sumar.

Mynd: Getty Images
Fyrrum leikmaður Manchester United, Jaap Stam hefur verið ráðinn þjálfari hollenska úrvalsdeildarliðsins Feyenoord og tekur hann við liðinu í sumar.
Stam semur við Feyenoord til ársins 2021.

Feyenoord er þessa stundina í 3. sæti hollensku úrvalsdeildarinnar en Stam tekur við liðinu af Giovanni van Gronckhorst en hann hefur verið við stjórnvölinn frá árinu 2015.
Stam er núverandi þjálfari hollenska liðsins Zwolle sem eru í 15. sæti deildarinnar í harðri fallbaráttu. Jaap Stam hóf meistaraflokksferil sinn einmitt hjá Zwolle. Áður hafði Stam þjálfað Reading í ensku B-deildinni.
Auk þess að spila með Zwolle og Manchester United lék Stam með Lazio, AC Milan, PSV Eindhoven, Willem II, SC Cambuur og Ajax.
Feyenoord féllu úr hollenska bikaranum á dögunum eftir 3-0 tap gegn Ajax í undanúrslitum.