06.03.19 - 14:33
Arnar Daði Arnarsson
Marteinn Urbancic í Reyni S. (Staðfest)

Marteinn í leik með ÍR árið 2015.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Marteinn í leik með ÍR árið 2015.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Marteinn Pétur Urbancic mun spila með Reyni Sandgerði í 3. deildinni í sumar.
Hann kemur til félagsins frá Þrótti Vogum en hann lék sjö leiki með liðinu síðastliðið sumar og 18 leiki sumarið á undan.

Marteinn lék sínu fyrstu meistaraflokksleiki með Haukum sumarið 2011. Fyrir sumarið 2013 skipti hann yfir til ÍR og lék með ÍR-ingum þrjú sumur í 2. deildinni.
Undanfarin tvö sumur hefur hann svo leikið með Þrótti Vogum í 3. og 2. deildinni en hefur nú skipt um lið á Suðurnesjunum og mun leika með Reyni Sandgerði í 3. deildinni í sumar.
Hann þekkir vel til í Sandgerði en hann lék með liðinu í 3. deildinni sumarið 2016.
Í febrúar fékk Reynir Sandgerði hinn leikreynda Admir Kubat til sín.