Musiala efstur á blaði Man City - Sóknarmenn orðaðir við Arsenal - Colwill orðaður við Liverpool og PSG
   fös 06. mars 2020 08:00
Brynjar Ingi Erluson
Napoli og Everton á eftir Veretout
Jordan Veretout í leik með Roma
Jordan Veretout í leik með Roma
Mynd: Getty Images
Everton og Napoli eru á eftir franska miðjumanninum Jordan Veretout en umboðsmaður leikmannsins greinir frá þessu í viðtali við Radio Marte.

Veretout er 27 ára gamall miðjumaður en hann er á láni hjá Roma frá Fiorentina og verður keyptur til Roma í sumar fyrir 17 milljónir evra.

Hann er uppalinn hjá Nantes og vann meðal annars HM U20 ára með franska landsliðinu en hann var einn besti maður mótsins og spilaði þar með leikmönnum á borð við Paul Pogba og Geoffrey Kondogbia.

Umboðsmaður leikmannsins greinir frá því að hann gæti farið til Everton eða Napoli í sumar.

„Ég veit að forseti Napoli spurði fyrir um Veretout í janúar en það var ekki nægur tími til að klára viðræður. Ég myndi ekki útiloka þann möguleika í sumar. Ancelotti er mikill aðdáandi líka," sagði Mario Giuffredi, umboðsmaður Veretout.
Athugasemdir
banner
banner