Brynjar Gestsson hættur með ÍR (Staðfest)

Brynjar á hliðarlínunni hjá ÍR síðasta sumar. Hann er hættur þjálfun liðsins í bili að minnsta kosti og stýrir þeim ekki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar á hliðarlínunni í fyrrasumar ásamt Ásgeiri Aroni Ásgeirssyni þá aðstoðarmanni sínum. Ásgeir Aron tekur við liðinu ásamt Jóhannesi Guðlaugssyni yfirþjálfara og þjálfara 2. flokks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Brynjar á hliðarlínunni hjá ÍR síðasta sumar. Hann er hættur þjálfun liðsins í bili að minnsta kosti og stýrir þeim ekki í sumar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Eiginkona Brynjars lést í síðasta mánuði eftir langvinn veikindi og vegna þessa hafði hann verið í fríi frá störfum síðan 15. janúar. Hann óskaði svo í vikunni eftir lengra fríi og ljóst að hann verður ekki með liðið í sumar. Félagið segir þó vilja til að hann taki aftur við liðinu síðar.
Ásgeir Aron Ásgeirsson sem var aðstoðarmaður Brynjars mun taka við liðinu með Jóhannes Guðlaugsson yfirþjálfara og þjálfara 2. flokks sér til aðstoðar. ÍR leikur í 2. deildinni á komandi sumri.
Þann 3.apríl síðastliðinn óskaði Brynjar Þór Gestsson eftir að framlengja tímabundið leyfi frá starfi sínu sem þjálfari okkar í meistaraflokki karla af persónulegum ástæðum. Brynjar fór í tímabundið leyfi frá störfum frá 15.janúar og hefur Ásgeir Aron Ásgeirsson stjórnað liðinu frá þeim tíma ásamt Jóhannesi Guðlaugssyni yfirþjálfara og þjálfara 2.flokks.
Stjórn ÍR varð að sjálfsögðu við beiðni Brynjars og því er ljóst að hann mun ekki sinna þjálfun liðsins á leiktímabilinu 2019. Jafnframt vill stjórn félagsins ítreka samúðarkveðjur til Brynjars vegna veikinda og andláts konu hans, Arndísar Jónasdóttur, nú í marsmánuði. Brynjar vill þakka þann stuðning sem knattspyrnudeild ÍR hefur veitt honum á þeim erfiðu tímum, sá stuðningur hefur skipt hann miklu máli.
Stutt er í næstu verkefni liðsins, þátttaka ÍR í Mjólkurbikarkeppninni hefst 11.apríl og Íslandsmótið síðan í upphafi maí. Ákveðið hefur verið að framlengja ráðningu þeirra Ásgeirs og Jóhannesar sem þjálfara í forföllum Brynjars og munu þeir stýra liðinu í þeim verkefnum sem fram undan eru og verða nú aðalþjálfarar liðsins.
Brynjar kom til starfa haustið 2017 hjá ÍR og hefur ríkt ánægja með hans störf hjá félaginu. Báðir aðilar hafa lýst yfir vilja til frekara samstarfs á síðari tímum en í augnablikinu er það persónuleg velferð Brynjars sem verður í fyrsta sæti og mun félagið halda áfram að gera allt sem í þess valdi stendur til að styðja við bak hans, um leið og við þökkum fyrir hans störf fyrir félagið í þessari samstarfslotu.
Brynjar Þór Gestsson
Magnús Þór Jónsson, formaður knd. ÍR.

Brynjar á hliðarlínunni í fyrrasumar ásamt Ásgeiri Aroni Ásgeirssyni þá aðstoðarmanni sínum. Ásgeir Aron tekur við liðinu ásamt Jóhannesi Guðlaugssyni yfirþjálfara og þjálfara 2. flokks.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
