06.04.19 - 19:02
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Shahab Zahedi til Suður-Kóreu (Staðfest)

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn

Mynd: Fotbolti.net - Anna Þonn
Shahab Zahedi er genginn til liðs við Suwon Bluewings í Suður-Kóreu.
Þessi 24 ára framherji hefur leikið með ÍBV undanfarin tvö tímabil. Zahedi getur einnig leikið sem kantmaður.
Hann var fyrsti leikmaðurinn frá Íran til að spila á Íslandi og verður einnig sá fyrsti frá Íran til að spila með Blávængjunum.
Suwon Bluewings er stórveldi í Suður-Kóreu og hefur komist í átta liða úrslit Meistaradeildar Asíu síðustu átta ár.
Shahab spilaði 28 leiki fyrir ÍBV í deild og bikar og skoraði í þeim tíu mörk.

Heimild: TehranTimes