Fotbolti.net
06.04.19 - 11:10
Ívan Guðjón Baldursson

Viktor Helgi Benediktsson í Stord (Staðfest)

Viktor Helgi Benediktsson í Stord (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Viktor Helgi Benediktsson er búinn að skrifa undir samning við norska D-deildarfélagið Stord.
Viktor Helgi, fæddur 1998, gengur til liðs við félagið á frjálsri sölu enda samningslaus eftir að hafa rift samningi sínum við ÍA vegna lítils spiltíma.

Viktor er uppalinn hjá FH og gerði vel á sínu fyrsta tímabili með meistaraflokki HK sumarið 2017. Í fyrra lék hann 16 keppnisleiki fyrir ÍA, 12 í Inkasso-deildinni og 4 í bikar.

Jón Páll Pálmason, fyrrverandi þjálfari kvennaliðs Fylkis og karlaliðs Hattar, er við stjórnvölinn hjá Stord en hann hefur starfað sem þjálfari í Noregi undanfarin ár.

Viktor Smári Segatta og Vignir Snær Stefánsson eru þegar á mála hjá Stord.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.