Undrabarnið Youssoufa Moukoko mun ekki spila meira með Borussia Dortmund á þessu tímabili.
Þessi 16 ára gamli strákur skaddaði liðbönd í hné og mun ekki spila fyrr en eftir sumarfrí.
Nýlega var Moukoko valinn í U21 landslið Þýskalands og átti möguleika á að verða sá yngsti frá upphafi til að spila fyrir liðið.
Meiðsli Moukoko eru hins vegar verri en í fyrstu var talið og mun hann þurfa að jafna sig næstu vikur og mánuði.
Moukoko varð yngsti leikmaður og markaskorari í sögu Dortmund á tímabilinu og hefur leikið samtals 15 leiki á leiktíðinni.
Athugasemdir