Fotbolti.net
06.04.26 - 21:23
Kári Snorrason

Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal

Auglýsing
Arnór Ingvi: Hefðum viljað spila á Meistaravöllum og fá smjörþefinn af því sem koma skal
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mjólkurbikarinn
Arnór Ingvi Traustason lék allan leikinn í 4-2 sigri KR á Val í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins fyrr í kvöld. Dregið verður í 16-liða úrslit þann 9. apríl.

Arnór ræddi við Fótbolta.net eftir sigurinn.
„Þetta var fínt. Við duttum aðeins niður á nokkrum köflum. Sá kafli í seinni hálfleik var kannski of langur. En heilt yfir vinnum við frekar sannfærandi og við erum alveg sáttir við þennan sigur.“
Lestu um leikinn: KR 4 - 2 Valur
KR-ingar hafa nú nýverið unnið sannfærandi sigur gegn Val, Stjörnunni og Breiðabliki.
„Það er kannski oft erfitt að meta úrslit á undirbúningstímabili en við komum vel undan vetri. Við höfum verið sannfærandi, eins og ég segi þá erum við KR og förum í hvern leik til að vinna hann. Það mun ekkert breytast.“

Hvernig hafa fyrstu mánuðirnir í KR verið?
„Mjög góðir, gott að vera í KR, geggjaður hópur, gott lið og ég elska lífið.“

Arnór mætir uppeldisfélaginu í fyrsta deildarleik sínum með KR.
„Klárlega, við hefðum viljað hafa þennan leik á Meistaravöllum og fá smjörþef af því sem koma skal. En við fáum það næstu helgi heima á móti Keflavík.“
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.