Fotbolti.net
06.04.26 - 23:30
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Arteta tjáði sig um nýstárlega æfingu á æfingasvæðinu

Arteta tjáði sig um nýstárlega æfingu á æfingasvæðinu
Canon

Mynd: EPA

Myndband af æfingu Arsenal fyrir leikinn gegn Sporting í 8-liða úrslitum Meistaradeildarinnar hefur vakið mikla athygli þar sem pennar voru notaðir.

Arsenal hefur átt erfiða viku en liðið tapaði gegn Man City í úrslitum deildabikarsins um síðustu helgi og tapaði síðan óvænt gegn Southampton í 8-liða úrslitum enska bikarsins um helgina.
Í myndbandi sést að það var búið að skipta liðinu í fjögurra manna hópa. Þeir áttu að halda penna með einum fingri á milli sín og koma í veg fyrir að missa hann og boltann.

Arteta var beðinn um að útskýra hugmyndina á bakvið þessa æfingu.

„Æfingarnar þurfa að innihalda mismunandi þætti. Það verður að tengjast skilaboðunum sem við sendum og þeim málamiðlunum og skuldbindingum sem við höfum gert á milli okkar," sagði Arteta.

Hann var beðinn um að útskýra þetta nánar en þá sagði hann „Það helst í búningsklefanum."

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.