Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   mán 06. apríl 2026 23:23
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gunnar Már: Ætlum okkur stóra hluti í sumar
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fjölnir féll úr leik í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins í dag eftir tap í ótrúlegum leik gegn HK. Fótbolti.net ræddi við Gunnar Má Guðmundsson, þjálfara liðsins, eftir leikinn.

Lestu um leikinn: Fjölnir 3 -  4 HK

„Fúll að missa niður tveggja marka forystu. Okkur leið illa að vera með forystu, bregðumst vel við í bæði skiptin sem þeir jafna, förum að sækja og spila aftur fótbolta en hundfúlt að fá á okkur tvö mörk eftir hornspyrnu í lokin," sagði Gunnar Már.

Fjölnir var með 2-0 forystu í hálfleik en missti hana niður í jafntefli eftir tíu mínútur í seinni hálfleik.

„Mér fannst þetta vera ódýrt mark, við fáum á okkur mark eftir að við eigum innkast við hornfána og þeir sleppa í gegn. Fyrsta pressa eftir að boltinn tapast er léleg. Mér fannst við ekki með sjálfstraust eftir að við erum komnir yfir. Það vantaði meiri ró."

Fjölnir spilar í 2. deild í sumar eftir að hafa fallið úr Lengjudeildinni síðasta sumar.

„Hún er ágæt, liðið er að koma saman og við höfum staðið okkur vel í þessum vetrarmótum. Við ætlum okkur stóra hluti í sumar, ætlum okkur upp. Það er erfitt að rýna í þessa deild, það eru nokkur lið sem eru klárlega ekki tilbúin. Við mætum í hvern leik hverju sinni."
Slapp
banner
banner