06.04.26 - 18:54
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Mjólkurbikarinn: Aron Sig frábær í sigri KR á Val

KR vann 4-2 í Egilshöll.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR vann 4-2 í Egilshöll.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

KR 4 - 2 Valur
1-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('6 )
2-0 Finnur Tómas Pálmason ('20 )
3-0 Aron Sigurðarson ('46 )
3-1 Birkir Heimisson ('66 )
4-1 Aron Sigurðarson ('85 )
4-2 Bjarni Mark Antonsson ('90 )
Lestu um leikinn
1-0 Eiður Gauti Sæbjörnsson ('6 )
2-0 Finnur Tómas Pálmason ('20 )
3-0 Aron Sigurðarson ('46 )
3-1 Birkir Heimisson ('66 )
4-1 Aron Sigurðarson ('85 )
4-2 Bjarni Mark Antonsson ('90 )
Lestu um leikinn
KR er komið áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir sigur á Val í Reykjavíkurslag.
Eiður Gauti Sæbjörnsson kom KR yfir snemma leiks. Hann átti skalla beint á Frederik Schram en fékk boltann aftur og skoraði á opið markið.
KR byrjaði leikinn mun betur og Finnur Tómas Pálmason skoraði annað mark liðsins þegar hann skallaði boltann í netið eftir hornspyrnu frá Aroni Sigurðssyni.
KR gerði svo gott sem út um leikinn strax í upphafi seinni hálfleiks þegar Aron skoraði laglegt mark.
Valur náði að klóra í bakkann þegar Birkir Heimisson skallaði boltann í netið en Aron Sig innsiglaði sigur KR undir lokin. Bjarni Mark Antonsson skoraði sárabótamark með góðu skoti fyrir utan teig í uppbótatíma en þá voru úrslitin ráðin. KR verður í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslit á fimmtudaginn.