Man Utd íhugar að selja Ugarte - Liverpool vill leikmann í skiptum fyrir Salah - Vini Jr til Englands?
   mán 06. apríl 2026 14:58
Brynjar Ingi Erluson
Mjólkurbikarinn: Öruggt hjá Skagamönnum - Dramatískur endurkomusigur HK
Sjáðu mörkin neðst í fréttinni
Viktor Jóns skoraði tvennu í bikarsigri Skagamanna
Viktor Jóns skoraði tvennu í bikarsigri Skagamanna
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvö skallamörk frá Dominik Radic sendu HK-inga áfram
Tvö skallamörk frá Dominik Radic sendu HK-inga áfram
Mynd: HK
ÍA er komið áfram í 16-liða úrslit Mjólkurbikarsins eftir að hafa unnið sannfærandi 4-0 sigur á Haukum í Akraneshöllinni í dag. HK vann þá dramatískan 4-3 sigur á Fjölni í Grafarvogi en það var Dominik Radic sem leiddi endurkomu þeirra og gerði sigurmarki í uppbótartíma.

Viktor Jónsson kom Skagamönnum í sanngjarna 2-0 forystu á nokkrum mínútum um miðjan fyrri hálfleikinn. Fyrra markið gerði hann með skalla eftir hornspyrnu og seinna eftir stutta hornspyrnu Guðmundar Þórarinssonar á Viktor sem skaut boltanum í netið.

Staðan 2-0 í hálfleik og voru Skagamenn líklegri til að bæta við snemma í þeim síðari. Hornspyrnurnar voru að valda Haukum alls konar vandræðum en Haukar unnu sig betur inn í leikinn þegar á leið.

Það var því mikið högg fyrir Hauka þegar Gabríel Snær Gunnarsson gerði þriðja mark Skagamanna á 65. mínútu. Markús Páll Ellertsson fékk boltann í gegn, var óeigingjarn og lagði boltann á Gabríel sem skoraði.

Sjálfsmark undir lokin gerði endanlega út um þennan leik. Haukur Andri Haraldsson átti aukaspyrnu inn á teiginn sem Hallur Húni Þorsteinsson stýrði í eigið net og þar við sat.

Skagamenn komnir áfram í 16-liða úrslit en Haukar hafa lokið bikarævintýri sínu.

HK kom til baka og vann magnaðan 4-3 sigur á Fjölni í Egilshöllinni.

Viktor Andri Hafþórsson kom Fjölni í tveggja marka forystu. Hann skoraði með skalla á 26. mínútu og gerði annað markið tólf mínútum síðar með skoti úr teignum.

Fjölnismenn að spila vel en undir lok fyrri hálfleiks fóru HK-ingar að hóta og þeir tóku það með sér inn í hálfleikinn.

Í byrjun síðari skoraði Jóhann Þór Arnarsson tvö mörk á átta mínútum og jafnaði metin en fengu síðan skell er þeir fengu á sig vítaspyrnu sem Viktor Andri skoraði úr og fullkomnaði í leið þrennu sína.

Stundarfjórðungi fyrir leikslok jafnaði Dominik Radic aftur fyrir HK með hörkuskalla eftir hornspyrnu Ívars Arnar Jónssonar.

Radic var aftur á ferðinni í uppbótartíma og var það keimlíkt fyrra marki hans. Skalli eftir hornspyrnu og dýrmætt var það en HK er nú komið í 16-liða úrslit á meðan Fjölnismenn sitja eftir með sárt ennið.

Staðan er þá markalaus í Suðurnesjaslag Grindavíkur og Keflavíkur í knatthúsi Hauka í Hafnarfirði.

Grindvíkingar voru sterkari aðilinn í fyrri hálfleiknum og sköpuðu sér betri færi en Keflvíkingar fengu nokkur góð færi í síðari hálfleik þar sem bjargað var á línu eftir skalla Dags Inga Valssonar. Hann átti annað gott færi sem Hjörvar Daði Arnarssonar varði.

Ótrúlegt að það hafi ekki komið mark í þennan leik en spurning hvort við fáum það í framlengingunni.

ÍA 4 - 0 Haukar
1-0 Viktor Jónsson ('19 )
2-0 Viktor Jónsson ('24 )
3-0 Gabríel Snær Gunnarsson ('65 )
4-0 Hallur Húni Þorsteinsson ('88 , sjálfsmark)
Lestu um leikinn

Grindavík 0 - 0 Keflavík (Framlengt)
Lestu um leikinn

Fjölnir 3 - 4 HK
1-0 Viktor Andri Hafþórsson ('26 )
2-0 Viktor Andri Hafþórsson ('38 )
2-1 Jóhann Þór Arnarsson ('47 )
2-2 Jóhann Þór Arnarsson ('55 )
3-2 Viktor Andri Hafþórsson ('58 , víti)
3-3 Dominik Radic ('74 )
3-4 Dominik Radic ('91 )
Lestu um leikinn



Slapp
banner
banner