Man Utd og Chelsea hafa áhuga á Adeyemi - Real Madrid horfir til Gvardiol - Liverpool vill Dumfries
Davíð Smári: Það lítur ekki vel út fyrir Jóhann
Gunnar Heiðar: Helvíti langur tími fyrir fótboltaþjálfara
Jóhann Birnir svekktur: Mér fannst þetta ekki vera aukaspyrna
Fannst ekki ganga nógu vel að koma mönnum niður á jörðina eftir leikinn gegn FH
Brynjar Björn: Stór og sterkur og það er eitthvað sem vantaði
Venni: Æðislegt að hann taki þátt í þessu með okkur
Hallgrímur Mar: Loksins kominn í eitthvað stand
Hallgrímur Jónasar: Það býr meira í KA liðinu
Jói Kalli: Stuðningsmenn FH hafa allan rétt á sinni skoðun
Aron Sig: Væri högg fyrir hvert einasta lið
Talar um verðskuldaðan sigur: Hægt að vinna fótboltaleiki á fleiri vegu
Rúnar: Dálítið leiðinlegt að vera svona smámunasamur
Hemmi alsæll eftir dísætan sigur - „Ótrúlega fallegt að sjá þetta inni“
Óskar Hrafn: Partíin voru annars staðar
Ólafur Ingi neitar að tjá sig um mögulegt víti Blika
Haraldur Freyr: Flestir komast upp með mikið á móti honum
Fluttur til Keflavíkur og heldur sér uppteknum með fótboltanum
Jökull: Það eina sem ég hef áhyggjur af
Linta: Hötum að tapa en sýndum samt karakter
Viktor Jóns: Erfitt að verja svona
   mán 06. apríl 2026 17:15
Arngrímur Alex Ísberg Birgisson
Rúnar Páll: Óþarfa spenna hérna í lokin
Mynd: Grótta

„Mér líður bara ágætlega, eins og alltaf. Mikilvægt að komast áfram í þessa keppni, það var markmiðið okkar að komast í 16 liða úrslit og við náðum því. Nú höldum við áfram" sagði Rúnar Páll Sigmundsson þjálfari Gróttu eftir 1-0 sigur gegn Álftanes í Mjólkurbikarinum.


Lestu um leikinn: Grótta 1 -  0 Álftanes

Varstu ánægður með spilamennskuna í dag?

„Við fengum ágætis spilkafla í þessum leik og Álftanes reyndar líka. Þetta var bara hörku leikur og þetta var kannski aðeins meiri yfirburði hjá okkur en þeir voru stórhættulegi í sínum skyndisóknum, hornum og föstum leikatriðum. Þannig að við áttum alveg vök að verjast oft á tíðum en við fáum líka alveg mjög mörg tækifæri til þess að klára þetta og gera þetta stærra, það var óþarfa spenna hérna í lokin".

Þú hefðir viljað sjá Gróttu klára leikinn af?

„Já, að sjálfsögðu hefði ég viljað fá tvö þrjú mörk í viðbót".

Hvernig fannst þér Grótta ná að verja í föstum leikatriðum?

„Já, mér fannst við gera það ágætlega. Þeir voru alveg oft á tíðum undan í boltann og hirtu seinni boltana. Allaveganna tvö þrjú móment sem við hefðum geta gert betur. En þeir skoruðu ekki það er jákvætt".

Ánægður með hópinn fyrir sumarið, hvernig er hann?

„Hann er bara fínn, bar ungur og ferskur hópur sem margir hverjir hafa ekki spilað í Lengjudeildinni áður. Þannig að þetta verður bara krefjandi en bráðskemmtilegt sumar vonandi".

Þannig að þið bindið miklar vonir fyrir sumarið

„Já já. Við gerum það. Við þurfum að berjast í gegnum þetta og reyna að spila skemmtilegan fótbolta og bara njóta að spila fótbolta og hafa gaman að því sko".

Mattías Kjeld er nýkominn og fer beint í byrjunarliðið, hvernig fannst þér hann spila?

„Hann spilaði bara fínt, fyrsti leikurinn hans, æfði í gær og kemur beint í liðið okkar núna. Gaman fyrir mig að sjá hann aðeins spila og fyrir strákana að kynnast honum og það var ekkert annað að gera en að henda honum beint í liðið og sjá hvernig hann er. Hann gerði bara fínt eins og flest allir í dag".


Slapp
banner