Fotbolti.net
06.04.26 - 22:21
Jóhann Þór Hólmgrímsson

Tómas Óli og félagar styrkja stöðu sína á toppi dönsku deildarinnar

Tómas Óli hér til hægri

Tómas Óli hér til hægri

Canon

Mynd: AGF

Hinn 18 ára gamli Tómas Óli Kristjánsson og félagar í AGF styrktu stöðu sína á toppi dönsku deildarinnar í dag.

Liðið heimsótti Viborg en liðið vann 2-1 endurkomusigur. Tómas Óli kom inn á undir lok leiksins en hann hefur komið við sögu í átta leikjum á tímabilinu. Ísak Andri Sigurgeirsson var ónotaður varamaður hjá Viborg.
AGF er á toppnum með 55 stig, sjö stigum á undan Elíasi Rafni Ólafssyni og félögum í Midtjylland sem gerði jafntefli gegn Sonderjyske um helgina.

Viborg er í 4. sæti með 37 stig, stigi á eftir Sonderjyske sem er í 3. sæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.