Fotbolti.net
06.05.18 - 13:32
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Championship: Cardiff fer upp (Staðfest)

Bolton bjargaði sér á ótrúlegan hátt

Warnock er búinn að koma Cardiff upp.

Warnock er búinn að koma Cardiff upp.

Canon

Mynd: Getty Images

Cardiff, með Aron Einar Gunnarsson innanborðs, mun spila í ensku úrvalsdeildinni á næstu leiktíð.

Mikil spenna var fyrir lokaumferðina í Championship-deildinni sem leikin var í heild sinni í dag. Cardiff mætti Jóni Daða Böðvarssyni og félögum í það sem reyndist vera tíðindarlítill leikur. Niðurstaðan var markalaust jafntefli í Cardiff.
Því þurfti Cardiff að treysta á Birmingham gegn Fulham. Cardiff var með einu stigi meira en Fulham fyrir daginn en viti menn Birmingham, sem var í möguleika að falla úr deildinni, kláraði Fulham 3-1. Þetta var fyrsta tap Fulham síðan 16. desember!

Hreint út sagt ótrúlegt og Cardiff er því komið upp ásamt Wolves sem var fyrir nokkru búið að sigra deildina.

Í umspilið um þriðja lausa sætið í úrvalsdeildinni fara Fulham, Aston Villa, Derby County og Middlesbrough.

Sunderland, Barnsley og Burton Albion falla úr deildinni en Bolton náði að bjarga sér á magnaðan hátt, með endurkomusigri.

Hvað varðar Íslendinga, þá fer Aron Einar upp með Cardiff, Birkir Bjarnason, fer í umspilið með Aston Villa, Hörður Björgvin Magnússon endar í 11. sæti með Bristol City og Jón Daði Böðvarsson endar í 20. sæti með Reading, hann sleppur við fall.

Óvæntustu úrslit dagsins voru í Sunderland þar sem botnliðið valtaði yfir toppliðið. Hér að neðan eru öll úrslit dagsins.

Birmingham 3 - 1 Fulham
1-0 Lucas Jutkiewicz (\'15 )
2-0 Harlee Dean (\'43 )
2-1 Tom Cairney (\'84)
3-1 Che Adams (\'89)

Bolton 3 - 2 Nott. Forest
1-0 Adam Le Fondre (\'67 )
1-1 Ben Osborn (\'70 )
1-2 Jack Colback (\'79)
2-2 David Wheater (\'87)
3-2 Aaron Wilbraham (\'88)

Brentford 1 - 1 Hull City
1-0 Sergi Cans (\'12 )
1-1 Jarrod Bowen (\'45 )

Bristol City 2 - 3 Sheffield Utd
0-1 Leon Clarke (\'8 )
0-2 Billy Sharp (\'29 )
0-3 Kieron Freeman (\'34 )
1-3 Aden Flint (\'60 )
2-3 Joe Bryan (\'75 )
(Hörður Björgvin kom inn á sem varamaður í hálfleik hjá Bristol City og spilaði seinni hálfleikinn)

Cardiff City 0 - 0 Reading
(Jón Daði Böðvarsson spilaði 70 mínútur í fremstu víglínu hjá Reading. Aron Einar Gunnarsson er frá vegna meiðsla)

Derby County 4 - 1 Barnsley
1-0 Cameron Jerome (\'14 )
2-0 Matej Vydra (\'55 )
3-0 David Nugent (\'68 )
4-0 Tom Lawrence (\'72 )
4-1 George Moncur (\'80)

Ipswich Town 2 - 2 Middlesbrough
1-0 Freddie Sears (\'8 )
1-1 Stewart Downing (\'71 )
2-1 Martyn Waghorn (\'83, víti)
2-2 Patrick Bamford (\'90)

Leeds 2 - 0 QPR
1-0 Kemar Roofe (\'30 )
2-0 Kalvin Phillips (\'47 )

Millwall 1 - 0 Aston Villa
1-0 Shaun Williams (\'30 , víti)
(Birkir Bjarnason er tæpur vegna meiðsla og var hvíldur)

Preston NE 2 - 1 Burton Albion
1-0 Callum Robinson (\'26 )
2-0 Callum Robinson (\'35 )
2-1 Hope Akpan (\'63 )

Sheffield Wed 5 - 1 Norwich
1-0 Adthe Nuhiu (\'14 )
2-0 Fernando Forestieri (\'30 )
3-0 Frederico Venncio (\'58 )
4-0 Adthe Nuhiu (\'60 )
4-1 Timm Klose (\'83)
5-1 Adthe Nuhiu (\'90, víti)

Sunderland 3 - 0 Wolves
1-0 Ovie Ejaria (\'19 )
2-0 Ashley Fletcher (\'45 )
3-0 Paddy McNair (\'66 )

CONFIRMED | #CardiffCity finish second in the @SkyBetChamp with 90 points, AND ARE PROMOTED TO THE @PremierLeague! 💙#CityAsOne 🔵⚽️🔵⚽️ pic.twitter.com/oDO8lhGPyV

— Cardiff City FC (@CardiffCityFC) May 6, 2018


So, to clarify:

CARDIFF CITY are promoted to the Premier League.
DERBY COUNTY claim the final play-off spot.
BARNSLEY and BURTON ALBION are relegated.

Reaction: https://t.co/mcK3UpSm34 #bbcefl pic.twitter.com/oxXNYwieOR

— BBC Sport (@BBCSport) May 6, 2018

Fulham tapaði. Hér má sjá Ryan Sessegnon, besta leikmann Fulham á tímabilinu, í baráttunni í dag.

Fulham tapaði. Hér má sjá Ryan Sessegnon, besta leikmann Fulham á tímabilinu, í baráttunni í dag.

Canon

Mynd: Getty Images

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.