06.05.19 - 17:00
Arnar Daði Arnarsson
Agnes Þóra í KR (Staðfest)

Agnes Þóra í marki Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Agnes Þóra í marki Þróttar.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

KR hefur fengið til sín Agnesi Þóru Árnadóttur frá Þrótti R. Agnes hefur bæði leikið sem markvörður og miðvörður á sínum ferli en KR er í miklum markmannsvandræðum.
Hrafnhildur Agnarsdóttir lék með KR í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar en hún hefur búið í Kaupmannahöfn undanfarna mánuði og ekkert æft né leikið með KR síðan síðasta sumar.
Hrafnhildur Agnarsdóttir lék með KR í 1. umferð Pepsi Max-deildarinnar en hún hefur búið í Kaupmannahöfn undanfarna mánuði og ekkert æft né leikið með KR síðan síðasta sumar.
Agnes þekkir vel til í Vesturbænum en hún er uppalin í KR. Hún hefur leikið með Þrótti í Inkasso-deildinni síðustu tvö sumur. Þá hefur hún einnig leikið með Val og Aftureldingu.
KR mætir Val á miðvikudaginn í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar.
KR mætir Val á miðvikudaginn í 2. umferð Pepsi Max-deildarinnar.
