Fotbolti.net
06.05.19 - 07:00
Ívan Guðjón Baldursson

Chelsea selur Kylian Hazard til Belgíu (Staðfest)

Kylian Hazard í leik með Cercle Brugge.

Kylian Hazard í leik með Cercle Brugge.

Canon

Mynd: Getty Images

Búið er að staðfesta félagaskipti Kylian Hazard frá Chelsea og yfir til Cercle Brugge í Belgíu.
Kylian er 23 ára gamall sóknartengiliður sem var á láni hjá belgíska félaginu á tímabilinu. Hann stóð sig vel og ákvað félagið því að festa kaup á honum endanlega.

Kylian er öflugur leikmaður en kemst hvergi nærri þeim stað sem eldri bræður hans eru á. Thorgan Hazard er búinn að vera einn af betri leikmönnum þýsku deildarinnar í ár og Eden hefur verið meðal þeirra bestu í enska boltanum í nokkur ár.

Félagaskiptin hafa verið staðfest og munu þau ganga í gegn þegar félagaskiptaglugginn opnar í sumar.

Stuðningsmenn Chelsea óttast að Eden verði sá næsti til að yfirgefa félagið enda yfirgnæfandi líkur á því að hann gangi til liðs við Real Madrid í sumar.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.