Rashford yfirgefur Man Utd - Tottenham á eftir Alberti
banner
   fim 06. maí 2021 15:30
Ívan Guðjón Baldursson
Félagaskiptaglugginn lokar 12. maí
Mynd: KSÍ
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
KSÍ vill vekja athygli íslenskra félaga á því að félagaskiptaglugginn lokar á miðnætti miðvikudaginn 12. maí. Glugginn lokar þá fyrir alla leikmenn nema ósamningsbundna leikmenn yngri flokka sem geta skipt um félag til og með 29. júlí.

Glugginn opnar svo aftur í einn mánuð í sumar, frá 29. júní til 29. júlí.

Af vef KSÍ:
Sérstaklega er athygli félaga vakin á því að ef þau eru að fá leikmenn erlendis frá þá þurfa þau að vera tímanlega á ferðinni.

Búast má við því að félagaskipti á milli landa taki nokkra daga. Þá er minnt á að ef leikmenn eru frá öðrum löndum en innan EES, Grænlandi og Færeyjum skal fylgja staðfesting frá Útlendingastofnun og/eða Vinnumálastofnun á dvalar- og atvinnuleyfi leikmannsins á Íslandi, sem þarf að liggja fyrir áður en óskað er eftir félagaskiptum.


Vert er að minna á grein 15.5 í reglugerðinni er snýr að félagaskiptum. Hún hljóðar svona:
15.5. Almennt skal gilda, að leikmaður fær keppnisleyfi frá og með tilteknum degi hafi fullfrágengin tilkynning um félagaskiptin borist til skrifstofu KSÍ fyrir miðnætti daginn áður, en þó verður tilkynning sem berst um helgi eða á frídegi að öllu jöfnu afgreidd næsta virka dag á eftir og keppnisleyfi gefið út frá og með þeim degi. Berist tilkynning um félagaskipti undirrituð af leikmanni og félagi sem gengið er í, fyrir miðnætti á lokadegi félagaskiptatímabils skal íslensku félagi sem gengið er úr gefinn einn virkur dagur til að ganga frá félagaskiptunum með undirritun. Keppnisleyfi með nýju félagi getur því tekið gildi í slíkum tilfellum nokkrum dögum eftir að félagaskiptatímabili lýkur en við útgáfu slíks keppnisleyfis ber að gæta þess að a.m.k. tveir dagar líði á milli leikja hjá leikmanninum. Þegar félagið sem gengið er úr er erlent skulu reglur FIFA gilda og getur keppnisleyfi verið gefið út allt að 7 dögum frá lokadegi félagaskiptatímabils.

Tímabundin félagaskipti
Lágmarkstími tímabundinna félagaskipta er á milli tveggja félagaskiptatímabila. Félög geta því ekki lánað leikmenn eftir 12. maí. Leikmenn sem voru lánaðir á milli félaga í glugganum sem nú brátt tekur enda, geta ekki verið kallaðir til baka fyrr en glugginn opnast aftur, í fyrsta lagi 29. júní.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner