Fotbolti.net
06.06.17 - 11:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

Peter Bosz tekur við Dortmund (Staðfest)

Tekur við Dortmund.

Tekur við Dortmund.

Canon

Mynd: Getty Images

Borussia Dortmund hefur tilkynnt um ráðningu á Peter Bosz, en hann verður næsti þjálfari liðsins.

Hann hefur skrifað undir tveggja ára samning við Dortmund.

Hinn 53 ára gamli Bosz hættir með Ajax til að taka við Dortmund, en hann kom Ajax í úrslitaleik Evrópudeildarinnar á tímabilinu sem var að líða, þar tapaði lið hans gegn Manchester United.
Hann tekur við starfinu hjá Dortmund af Thomas Tuchel, sem var rekinn á dögunum. Samband Tuchel við stjórnina hjá Dortmund var ekki það besta og því var hann látinn fara.

Á síðasta tímabii Tuchel vann hann þýska bikarinn og lenti í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar. Hann kom Dortmund líka í 8-liða úrslit Meistaradeildarinnar þar sem liðið féll úr leik gegn Mónakó.

Bosz byggði upp mjög skemmtilegt lið hjá Ajax. Hann spilaði mikið á ungum leikmönnum sem eru nú margir undir smásjá stærri liða.

Hann hóf þjálfaraferil sinn hjá AGOVV Apeldoorn, sem er í heimabæ
hans í Hollandi, en nú er hann tekinn við einu stærsta félagi heims, Borussia Dortmund.

Peter Bosz is the new BVB Head Coach. Contract will last until 2019. Further info in a press conference this afternoon. #welkomhier #bvb pic.twitter.com/us7FngPgXy

— Borussia Dortmund (@BVB) June 6, 2017

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.