Fotbolti.net
06.06.17 - 21:30
Bjarni Þórarinn Hallfreðsson
Ítalska deildin

Pioli tekur við Fiorentina (Staðfest)

Pioli er kominn í sitt gamla félag

Pioli er kominn í sitt gamla félag

Canon

Mynd: Getty Images

Stefano Pioli er búinn að skrifa undir tveggja ára samning við Fiorentina um að taka við þjálfun liðsins í ítölsku úrvalsdeildinni.

Pioli var síðast þjálfari stórliðsins Inter Milan á nýafstöðnu tímabili en var rekinn er þrír leikir voru eftir af tímabilinu.

Pioli var rekinn frá Inter eftir að hafa ekki unnið leik í 8 leikjum í röð. Inter endaði í 7. sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar.

Pioli þekkir vel til hjá Fiorentina en hann lék með liðinu á tíunda áratug síðustu aldar og var meðal annars fyrirliði liðsins.

<i>„Fiorentina tilkynnir að félagið hefur náð samkomulagi við Stefano Pioli, um að taka að sér þjálfun aðalliðsins. Nýi þjálfarinn skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á þriðja árinu,\"</i> segir í yfirlýsingu frá Fiorentina.

Fiorentina endaði í áttunda sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á nýafstöðnu tímabili og var aðeins þremur stigum frá Evrópudeildarsæti.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.