06.06.17 - 17:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Spalletti tekur við Inter (Staðfest)

Spalletti er kominn með nýtt starf.

Mynd: Getty Images

Spalletti er kominn með nýtt starf.

Mynd: Getty Images
Luciano Spalletti hefur greint frá því að hann hafi samþyktt að verða næsti knattpyrnustjóri Inter Milan.
Hann verður fimmti þjálfari liðsins á innan við ári, en hann flaug út til Kína í dag til að hitta eigendur liðsins og skrifa undir pappíra.

„Við höfum tekist í hendur og þetta er allt klárt,\" sagði Spalletti við blaðamenn á flugvellinum í Mílanó.
„Ég er ánægður að vera nýr stjóri Inter.\"
Spalletti hætti með Roma á dögunum eftir eitt og hálft ár í starfi. Hann náði frábærum árangri með Roma á tímabilinu sem var að líða, liðið endaði í öðru sæti á eftir Juventus.
Spalletti mun skrifa undir tveggja ára samning við Mílanó-liðið, sem endaði í sjöunda sæti ítölsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu