06.06.18 - 21:30
Ingólfur Páll Ingólfsson
David Meyler til Reading (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Það er nóg um að vera á skrifstofu Reading þessa dagana, nú hefur félagið samið við David Meyler.
Hinn 29 ára gamli Meyler kemur til liðsins frá Hull City og skrifar undir tveggja ára samning með möguleika á því þriðja.
Áður hafði Reading fengið bæði Andy Yiadom og John O\'shea til félagsins.
Meyler spilaði 181 leik fyrir Hull City á tíma sínum hjá félaginu. Paul Clement, knattspyrnustjóri er sáttur við félagsskiptin.
„Ég er mjög ánægður að bjóða David til félagsins. Hann kemur með fullt af reynslu, hann mun bæta miklu við félagið okkar,\" sagði Paul Clement.
„Í lok tímabilsins fannst mér mikilvægt að ná í leikmann af hans stærðargráðu. Þegar ég hitti hann fann ég fyrir metnaði hans til þess að spila á hæsta þrepinu aftur. Saman munum við berjast fyrir því að koma félaginu áfram.\"