06.06.18 - 13:12
Magnús Már Einarsson
Diogo Dalot til Man Utd (Staðfest)

Diogo Dalot.

Mynd: Getty Images

Diogo Dalot.

Mynd: Getty Images
Manchester United hefur keypt portúgalska hægri bakvörðinn Diogo Dalot frá Porto. Talið er að kaupverðið sé í kringum 17 milljónir punda en Dalot skrifaði undir fimm ára samning með möguleika á árs framlengingu.
Hinn 19 ára gamli Dalot kom í gengum unglingastarf Porto en hann spilaði sína fyrstu leiki með liðinu á nýliðnu tímabili.
„Diogo er ótrúlega hæfileikaríkur ungur varnarmaður með öll gæði sem þarf til að verða frábær leikmaður fyrir þetta félag,\" sagði Jose Mourinho stjóri Manchester United.
„Hann hefur alla eiginleika sem bakvörður þar: líkamlega eiginleika, taktíska hugsun og tæknileg gæði. Þetta er í bland við hugarfarið úr akademíu Porto sem undirbýr leikmenn undir að þroskast til að spila sem atvinnumaður.\"
„Í sínum aldurshópi er hann besti bakvörðurinn í Evrópu og við teljum öll að hann eigi bjarta framtíð fyrir höndum hjá Manchester United.”

Today just got a whole lot better...https://t.co/bG1As7Jr2k #BemvindoDalot #MUFC pic.twitter.com/samRbFXaVt
— Manchester United (@ManUtd) June 6, 2018