Fotbolti.net
06.06.18 - 17:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson

O\'Shea verður liðsfélagi Jóns Daða (Staðfest)

Heldur áfram í Championship-deildinni.

Heldur áfram í Championship-deildinni.

Canon

Mynd: Getty Images

Varnarmaðurinn reyndi John O\'Shea er genginn til liðs við Reading í Championship-deildinni.

O\'Shea er orðinn 37 ára gamall en hann ætlar að halda áfram spila í Championship. Hjá Reading verður hann liðsfélagi landsliðsframherjans Jón Daða Böðvarssonar.
O\'Shea, sem lék með Manchester United frá 1999 til 2011, féll með Sunderland úr Championship-deildinni á nýliðnu tímabili, en Reading lenti aðeins þremur stigum fyrir ofan fallsæti.

„John hefur spilað og unnið á hæsta stigi fótboltans, hann hefur unnið ensku úrvalsdeildina fimm sinnum, verið hluti af sigurliði í Meistaradeildarinni og spilað 118 landsleiki fyrir þjóð sína,\" sagði Paul Clement, stjóri Reading. „Hann mun koma inn með reynslu og leiðtogahæfileika í liðið.\"

#JohnJoins pic.twitter.com/MHDbL4iy3v

— Reading FC (@ReadingFC) June 6, 2018

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.