06.06.18 - 18:26
Ingólfur Páll Ingólfsson
Pascal Gross framlengir til 2022 (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Brighton tilkynnti nú rétt í þessu að Pascal Gross hafi skrifað undir framlengdan samning sem heldur honum hjá félaginu til ársins 2022.
Miðjumaðurinn knái átti frábært tímabil fyrir Brighton. Hann var meðal annars kosinn leikmaður ársins hjá félaginu auk þess sem hann kom að 44,1% marka liðsins á tímabilinu. Aðeins Mohamed Salah var með betri tölfræði eða 50%.
Chris Hughton, knattspyrnustjóri Brighton var hæstánægður með að Gross hafi skrifað undir.
„Við erum ánægðir með að Pascal hafi samþykkt nýjan samning við félagið. Hann átti frábært fyrsta tímabil með okkur í ensku úrvalsdeildinni og við erum mjög sáttir við framlag hans. Hann aðlagaðist fljótt og hefur verið mikilvægur hluti af liðinu,\" sagði Hughton.
Gross kom til Brigthon í fyrra frá FC Ingolstadt 04 fyrir 2,7 milljónir punda.